[...]

ÓÐUR TIL MÁNANS

Þegar ég er búin að vaska upp Þegar ég er búin að fara út með ruslið Þegar ég er búin að skúra eldhúsgólfið Þegar ég er búin að bóna gangana Þegar ég er búin að ryksuga Þegar ég er búin að þurrka af Þegar ég er búin að þvo Þegar ég er búin ætla ég út á svalir að steyta skrúbbinn framan í mánann þangað hefur engin kona verið send með KARKLÚTINN ekki enn.
[...]